Sandakravegur
Gönguferð Lífsins lystisemda 26. júlí 2014
1
Allir mættir og beðið eftir rútunni
2
Mætt á staðinn og gangan hafin með smátári
3
Í upphafi var gengið eftir slóða, en fljótlega var farið út í hraunið. Borgarfjall í baksýn
4
Erum enn á slóðanum
5
Fjölbreyttur gróður - geldingahnappurinn búinn en blóðbergið á fullu
6
Leiðin var vel stikuð og stikurnar númeraðar
7
Það skiptust á moldarflög og mosaþembur á leiðinni
8
Moldarflag
9
Krækilyng og hreindýramosi
10
Sveppur í krækilynginu
11
Áð í hrauninu - Sandhóll í baksýn
12
Fyrsti sólargeislinn á göngunni - þeir urðu ekki margir, sólargeislarnir... Fagradalsfjall
13
Enn setið og nesti snætt. Dökka fjallið lengst til hægri er Þorbjörn, Vatnsheiði fyrir miðri mynd
14
Vatnsdropar á maríustakk
15
Allt í einu týndust stikurnar, en fundust fljótlega aftur - þess vegna er fólkið dreift um hraunið. Fagradalsfjall í baksýn
16
Stikurnar fundnar - og tækifærið notað til að líta i kringum sig. Við gengum oft með með andlitið niðri við jörð til að detta ekki...
17
Hér erum við komin á sýnilega gamla slóð. Fagradalsfjall í baksýn
18
Hér endar Sandakravegur og Skógfellavegur tekur við. Sést í Stóra Skógfell til hægri
19
Gömul slóð mörkuð í hraunið eftir hófa hestanna sem hér fóru um um aldir. Litla Skógfell framundan
20
Blóðberg og mosi
21
Enn er áð nú við Litla Skógfell
22
Beitilyng
23
Komin á Skógfellaveg
24
Enn eru gömlu göturnar vel markaðar og sýnilegar í hrauninu
25
Vörðuð leið. Fagradalsfjall í baksýn
26
Sigrún Valgarðs
27
Skógfellavegur - seinni hluti, sem var frekar erfiður yfirferðar
28
Holtasóley - búin að blómstra
29
Reykjanesið er allt krosssprungið
30
Gangan endar - fararskjótinn
31
Þetta er leiðin (bláa línan) sem við gengum ásamt hæðarbreytingum og gönguhraða. Samtals rétt tæpir 18 km á um 6 tímum með stoppum.
32
Fórum í sund til að vaska af okkur rykið...
33
Komið í Víðihlíðina og veislan undirbúin
34
Verði okkur að góðu! Frábærri en nokkuð erfiðri ferð lokið. Gengum tæpa 18 km á 6 tímum og áttum veisluna skilið!