Elliðaárdalur

Við hittumst í fyrstu göngu vetrarins í Elliðaárdalnum þann 31. október, nánar tiltekið á bílastæði við íþróttahús Víkings. Þaðan gengum við upp Elliðaárdalinn alla leið upp að Vatnsveitubrú svokallaðri við Breiðholtsbrautina neðan við Hvörfin í Kópavogi. Þetta var góður göngutúr sem tók alveg tvo tíma.
Það voru 16 manns sem mættu.

Mynd tók Eiríkur

 

Hópurinn í Fossvogsdalnum

   
   
 
Gert 25.nóv. 2010