Gengið um Hafnarfjörð

Sunnudagurinn 26. nóvember rann upp bjartur og fagur og þá sást fríður hópur ganga úr miðbæ Hafnarfjarðar í átt að Ástjörn. Þetta var MA-hópurinn á sinni mánaðarlegu göngu sem í þetta sinn var um Hafnarfjörð, með viðkomu við Ástjörn og á Hamrinum.

Þetta var 19 manna hópur sem mætti og gekk með Teiti um hans núverandi heimslóð í Hafnarfirði. Í lok göngunnar var síðan gerð innrás í Súfistann í miðbæ Hafnarjarðar og notið þar góðra veitinga.

Eins og svo oft áður eru myndirnar teknar af Eiríki og Guðrúnu Páls.