Strandganga I: Geldinganes - Mosfellsbær

Fyrsti hluti strandgöngu var farinn sunnudaginn 26. febrúar kl. 10:30. Gengið var frá Geldinganesi í Mosfellsbæ eftir göngustígum meðfram sjónum.
Veður var stillt, en þó gola og bullandi rigning. Gengu menn samt alla leið, flestir, og enduðu í bollukaffi hjá bakaranum og súkkulaðimeistaranum í Mosfellsbæ.
Mæting var 16 manns en aðeins fækkaði eftir að lagt var af stað.

Það var svo blautt í lokin að myndavélin sá allt í þoku í bakaríinu.

 

Myndir: EÞE