Jóhann Sigurjónsson

Minnisvarðar í Þingeyjarsýslum


Gilsbakki, Öxarfirði
Sigvaldi E. Sigurgeirsson

Sigvaldi E. Sigurgeirsson

Gilsbakki

Minningarreitur um hjónin Sigurlaugu Jósefsdóttur f. 13.2.1874 – d. 20.11.1959 og
Sigvalda E. Sigurgeirsson f. 3.7.1871 – d. 7.10.1922.

Reistur 1999 að tilhlutan Sigurðar Óskars Sigvaldasonar og afhjúpaður haustið 2000.

Sigurlaug og Sigvaldi fluttu að Gilsbakka vorið 1901 og bjuggu þar til æviloka. Gilsbakki hefur síðan verið í ábúð afkomenda þeirra hjóna.
Börn þeirra voru:
Benjamín, f. 1895, Sigurður f. 1897, Friðgeir f. 1899, Sigrún f. 1900, Halldór f. 1902, Ásfríður, f. 1904, Kristín f. 1906, Sigurður Óskar, f. 1908, Rakel, f. 1910, Guðný Ingibjörg f. 19011, Sesselja, f. 1913, Guðbjörg, f. 1915. Fósturdóttir, Margrét f. 1923.


Jóhanna Sigfúsdóttir (1881-1925) – Aðalsteinn Jónasson (1875-1958)
Hvammur Þistilfirði
Hvammur í Þistilfirði

Jóhanna Sigfúsdóttir,
f. 20.5.1881 – 22.6.1925
Aðalsteinn Jónasson
f. 21.6.1875 – 4.5.1958.
Niðjar

Minnisvarðinn var reistur af niðjum og stendur á Krummahól, en undir honum stóð bærinn Hvammur áður.

Jóhanna Sigfúsdóttir

Skúli Magnússon (1711-1794)
Skúli Magnússon
Skúli Magnússon landfógeti fæddist í Keldunesi 12.12.1711

Minnisvarðinn var afhjúpaður árið 1959 og stendur við Skúlagarð í Kelduhverfi.


Jóhann Sigurjónsson (1880-1919)
Jóhann Sigurjónsson
Jóhann Sigurjónsson skáld frá Laxamýri.

Minnisvarðinn var afhjúpaður á 100 ára afmæli skáldsins og var valinn staður á Heiðarendanum, nesi sem skilur að Laxá og Reykjakvísl við bæinn Laxamýri.

“Á hvítum hestum hleyptum við
upp á bláan himinbogann
og lékum að gylltum knöttum.”

Minnisvarðinn var afhjúpaður á afmæli skáldsins, 19. júní 1980.

Minnisvarðann gerði Einar Hákonarson.

Jóhann Sigurjónsson
Jóhann Sigurjónsson

Mývatnssveit

Minnisvarði um slys
Minnisvarði um þrjá menn við Mývatn

Til minningar um
Böðvar Björgvinsson fæddur 1942 starfsmaður Símans
Jón Kjartansson fæddur 1945 starfsmaður Símans
Sigurgeir Stefánsson fæddur 1962 starfsmaður Kísiliðjunnar
sem drukknuðu í Mývatni við lagningu ljósleiðara þann 26. október 1999.
Blessuð sé minning þeirra.

Reist af Félagi íslenskra símamanna og
Rafiðnaðarsambandi Íslands 2003

Minnisvarðinn sem er úr stáli er hannaður af þeim Þresti Ármannssyni og Jóni Aðalsteinssyni en smíðaður af Daða Gráns. Áletrun steypt í málmsteypunni Hellu. Hann er staðsettur á Grímsstaðaöxl í landi Grímsstaða á gatnamótum. Þaðan gefur einstaklega fagra sýn yfir Ytri-Flóa þar sem sá sorgaratburður gerðist sem minnst er.


Einarsætt í Reykjahlíð
Reykjahlíð Mývatn

Minnisvarðinn stendur á bökkum Mývatns við Reykjahlíð

1995
Búsetuafmæli Einarsættar

Innkomnir í Reykjahlíð 1895 frá Svartárkoti:
Hjónin
Einar Friðriksson 55 ára
Guðrún Jónsdóttir 49 ára
Börn þeirra:
Jón Frímann 24 ára
Illugi Arinbjörn 22 ára
Guðrún Friðrika 19 ára
Ingólfur Ísfeld 16 ára
Þuríður 12 ára
Sigurður 11 ára
Anna Sigríður 8 ára
María 6 ára
Jónas 4 ára

Vinnufólk:
Björg Júlíana Friðriksdóttir 47 ára
Gerður Jónsdóttir 12 ára
Guðfinna Þorláksdóttir 26 ára
Sigurður Jónsson 20 ára

Reykjahlíð

Sólveig Stefánsdóttir (1891-1967) og Sigfús Hallgrímsson (1883-1966)
Vogar Mývatn

Gefið á gullbrúðkaupsdegi
Sólveigar Stefánsdóttur og Sigfúsar Hallgrímssonar
21. júní 1962 af börnum þeirra.

Stendur við Voga í Mývatnssveit.

Vogar - Mývatn
Vogar M'yvatn

Vogar, Mývatnssveit
Vogar - Mývatn

Í tilefni búsetu Hallgríms og Ólafar í Vogum
og niðja þeirra í 100 ár – 1890-1990.

Hallgrímur Pétursson (1848-1926) og Ólöf Valgerður Jónasdóttir (1848-1908) bændur í Vogum í Mývatnssveit.

Minningarplatan er fest á klett við Voga í Mývatnssveit.

Vogar - Mývatn

Miðkvíslarstífla
Miðkvíslarstífla
Miðkvíslarstífla reist 1960.

Heimamenn sprengdu stífluna 25. ágúst 1970 til að mótmæla stórvirkjun við Brúar. Tímamót í náttúruvernd á Íslandi.

Minnisvarðinn sendur við Miðkvísl í Laxá í Aðaldal


Minnisvarði um Böðvar Jónsson frá Gautlöndum
Böðvar Jónsson

Minnisvarðinn var reistur af sonum Böðvars Jónssonar fyrrum bónda á Gautlöndum til minningar um hann. Hann var mjög mikill áhugamaður um landgræðslu og gróðurvernd, nánast hugsjónamaður. Minnisvarðinn stendur á Sandfelli þaðan sem einkar fallegt útsýni er yfir Mývatnssveit. Sandfell mun hafa verið nánast örfoka melur hér áður fyrr en er nú vel gróið, ekki síst fyrir tilstilli Böðvars.

Böðvar Jónsson

Laugar í Reykjadal

Minningarlundur
Laugar

Þennan lund gerðu Laugamenn árið 1970
til minningar um:

Þórólf Arnkelsson,
f. 14.2.1952, d.1.6.1971

Tryggva Ingason
f. 18.10.1963
d. 1.8.1984

Hilmar Hermóðsson
f. 30.8.1953
d. 1.6.1999

Laugar

Ingi Tryggvason 1921-2018
Ingi Tryggvason Narfastöðum
Ingi Tryggvason ferðaþjónustubóndi á Narafstöðum í Reykjadal.

,,Gróðri enn hann gefur skjól og gegstum býður næturból”
Ingi Tryggvason ferðaþjónustubóndi
heill þér níræðum
Ferðaþjónustubændur á Íslandi

Ingi Tryggvason Narfastöðum

Halldóra Sigurjónsdóttir
Halldóra Sigurjónsdóttir skólastjóri Húsmæðraskólans á Laugum

Til minningar um ævistarf Halldóru Sigurjónsdóttur 1905-1994, sem var kennari við Húsmæðraskóla Þingeyinga á Laugum 1930-1966 og jafnframt skólastjóri frá 1946.

Ásmundur Sveinson 1893-1982

Ljóðið við rokkinn (1962)

Frá Kvenfélagasambandi Suður-Þingeyinga, Menningarsjóði Þingeyskra kvenna, samstarfsfólki og nemendum.

Halldóra Sigurjónsdóttir

Aðaldalur

Hermóður Guðmundsson bóndi í Árnesi 1915-1977
Hermóður Guðmundsson
Hermóður Guðmundsson bóndi í Árnesi
f. 3. maí 1915 – d. 8. mars 1977

Forystumaður i íslenskri bændastétt
Sverð og skjöldur Landeigendafélags Laxár og Mývatns
Það félag reisti honum þennan minnisvarða árið 1980 fyrir unnin afrek við verndun Laxár og Mývatnssvæðisins 1966-77
Sú barátta skapaði tímamót í náttúruvernd á Íslandi

Minnisvarðinn stendur gegnt Ýdölum í Aðaldal

Hermóður Guðmundsson
Hermóður Guðmundsson

Húsavík

Einar Benediktsson 1864-1940
Einar Benediktsson

Minnisvarði um Einar Benediktsson skáld sem lengi bjó á Héðinshöfða á Tjörnesi þar sem minnisvarðinn stendur.

Vangamyndina gerði Ríkarður Jónsson og Jóhann Björnsson teiknaði minnisvarðann sem var afhjúpaður árið 1972.

Einar Benediktsson

“Hjá þér eru yngstu
óskir míns hjarta skírðar.”

…”Mín léttustu spor
eru grafin í þína sanda.”
[Útsær]


Skógræktarfélag Húsavíkur
Skógrækt Húsavík

Skógræktarfélag Húsavíkur
stofnað 1943.
Þórir Friðgeirsson – Sigurður Gunnarsson
Einar J. Reynis – Jón Haukur Jónsson
Einar J. Guðjohnsen.

Þökkum ykkur framsýnina og þrautsegjuna
1995.

Minnisvarðinn stendur við Botnavatn ofan Húsavíkur


Sigurjón Benediktsson, Snædís Gunnlaugsdóttir
Sigurjón Benediktsson og Snædís Gunnlaugsdóttir

Innilegar þakkir fyrir ykkar fórnfúsa starf í þágu skógræktar á Húsavík.
Án ykkar væri umgjörð Húsavíkur önnur.
Vinir

Kaldbakur

Minnisvarðinn stendur við bæinn Kaldbak, skammt frá veginum til Húsavíkur


Nikulás A.P. Buch 1755-1805
Nikulás A.P.Buch

Minnisvarði
Nikulásar A.P. Buch
f. 1755 – d. 1805

Hann stofnaði fyrsta skíðaskóla í heimi á Húsavík 1777

Nikulás A.P.Buch

Þórður S. Guðjohnsen (1844-1926)
Þórður S. Guðjohnsen Húsavík
Reist til minningar um Þórð Sveinbjörnsson Guðjohnsen 1844-1926
af afkomendum hans.

Minnisvarðinn er eftir Helga Gíslason myndhöggvara.

Minnisvarðinn stendur á bakkanum ofan við höfnina, fyrir framan Húsavíkurkirkju.


Garðar SvavarssonFarfuglar
Garðar Svavarsson
Minnisvarði
Garðars Svavarssonar

Farfuglar

Sigurjón Ólafsson myndhöggvari 1976

Verkið er á auðu svæði í miðri Húsavík

Farfuglar - Garðar Svavarfsson Húsavík

Ægir – til minningar um látna sjómenn á Húavík
Minnisvarði um drukknaða Húsavík
Ægir Húsavík
Ægir Húsavík

Ægir

Til minningar um látna sjómenn á Húsavík.

Jesús sagði:
Ég lifi og þér munuð lifa.

Minnisvarðinn er eftir Hallstein Sigurðsson og stendur við Húsavíkurkirkju


Bjarnabúð
Bjarnabúð
Bjarnabúð

Húsið byggði Bjarni Benediktsson athafnamaður (1877-1964), árið 1907.

Húsið var miðstöð umsvifa hjónanna Bjarna og konu hans Þórdísar Ásgeirsdóttur (1889-1965) árin 1907 til 1955 er þau fluttu til Reykjavíkur. Bjarni var póstmeistari og rak pósthús í húsinu árin 1907 til ársloka 1954.
Hjónin ráku verslun, útgerð, fiskverkun, umboð fyrir olíufélag og skipafélag, kúabú og hótel.

Bjarnabúð

Æfingar Apollo geimfara á Íslandi
Geimfarar Húsavík

Minnisvarðinn stendur ofan hafnarinnar á Húsavík

Apollo astronaut training in Iceland
Geology field trips 1965 & 1967
Jarðfræðiferðir 1965 og 1967

William Anders – Joseph P. Kerwin
Neil Armstrong – Don L. Lind
Charles Bassett – Jack R. Lousma
Alan Bean – Thomas Ken Mattingly
Vance D. Brand – Bruce McCandless
Gerald P. Carr – Frank Curtis Michel
Eugene Cernan – Edgar Mitchel
Roger B. Chaffe – William Pouge
Walter Cunningham – Stuart Roosa
Charles Duke – Garrison Schmitt
Donn F. Eisele – Russell Schweickart
Joseph Engele – David Scott
Ronald Evans – John L. Swigert
Owen Garriott – Paul J. Weitz
Edweard Gibson – Clifton Williams
Fred Haise – Alfred Worden


Sigurjón Ármannsson (1896-1958)
Strandfuglar

Strandfuglar eftir Sigurjón Pálsson.
Tileinkað afa hans, Sigurjóni Ármannssyni (1896-1958), kennara og bæjargjaldkera á Húsavík.

Strandfuglar Húsavík

Laxárdalur

Jón J. Víðis 1894 – 1975
Jón J. Víðis
Jón J. Víðis fæddist á Þverá 1894 – lést 1975

Hann var ættarhöfðingi
Hann mældi hafnir bæi og vegi um land allt
Hann teiknaði útsýnisskífur og hús

Reist af frændfólki, Ingólfsbræðrum og Vegagerðinni 2009

Minnisvarðinn stendur neðan við bæinn Þverá í Laxárdal

Þverá í Laxárdal

Unnur Benediktsdóttir Bjarklind 1881 – 1946
Hulda skáldkona

Hulda (Unnur Benediktsdóttir Bjarklind) fæddist á Auðnum í Laxárdal 6. júní 1881. Hún lést 10. apríl 1946.

Hulda bjó á Húsavík og í Reykjavík og gaf út fjölda bóka með ljóðum og smásögum. Hún fékk fyrstu verðlaun í samkeppni um lýðveldisljóð (Hver á sér fegra föðurland) ásamt Jóhannesi úr Kötlum. Hulda ritaði endurminningar sínar ,,Úr minningablöðum” sem gefnar voru út árið 1965.

Hulda
Hulda

Minnisvarðinn stendur í Huldulundi í Laxárdal í landi Auðna

Um Huldu skáldkonu er mikill fróðleikur á skáldavefnum


Raufarhöfn
Síldarstúlkan

Síldarstúlkan
Gjöf til Raufarhafnar frá Hrútadagsnefnd 2012.

Hún stendur við ysta haf.
Miðnætur sólin gefur henni auka orku til að standa aðeins lengur á planinu.
Kvöldroðinn setur dreymandi blik í augu hennar.
Hún er síldarstúlka
– það er rómantískt, gaman og göfugt.
Er það ekki?!
Standa í hvaða veðri sem er, kannsli slorug upp fyrir haus og salta síld í tunnu.
Keppast við …
– meira salt!
– nýja tunnu!
Vinna hratt, lengi … allt of lengi … sárir fingur, verkir í baki og aumir fætur
Vera ræst út með banki á glugga um miðja nótt .. sofa í bragga .. jafnvel standandi á planinu.
Kannski hefur hún augastað á menntaskólapilti úr verksmiðjunni, eða hraustum sjómanni.
Kannski á hún mann sem vinnur líka á planinu og börn sem bíða heima.

Hún er ung, hraust, dugleg, ósérhlífin og rösk
Hún er þreytt, úrvinda.
En það skiptir ekki máli .. það þarf að salta aflann, búa til verðmæti, efla sjálfstæða þjóð.
– það skiptir ekki máli …
– því stígvélin eru full af merkjum!
Merki fyrir hverja tunnu.
Merki um dugnað hennar og þrautsegju, merki um von, um tækifæri, um sjálfstæði …
fjárhagslegt sjálfstæði stúlku.

Hún er síldarstúlkan.

Höf.: Ingibjörg Guðmundsdóttir


Langanesbyggð

Russell W. Sims, jr.
Flugvél

On July 25, 1969 command pilot Commander Russell W. Sims, jr. and co-pilot Lt. Daniel A. Blycker, crash landed this United States Navy R4D-6 cargo aircraft on a supply mission in support of the US Air Force 667 Aircraft Control and Warning Squadron located at the Langanes Air Station. The plane remains at the original site of the crash and the former Þórshöfn runway.

Árið 2023 var flak flugvélarinnar selt suður á land og fjarlægt frá Sauðanesi.
Það er nú við Eyvindarholt undir Eyjafjöllum. Skjöldurinn er því miður ekki á sínum stað.

Minningarskjöldur

Russell W. Sims, jr.
CDR USN

Flugvélarflakið

Flugvélin á nýjum stað við Eyvindarholt undir Eyjafjöllum.

Grein um Russell W. Sims, jr. í Reykjavik Grapevine


Kristján Einarsson frá Djúpalæk (1916-1994)
Kristján frá Djúpalæk Langanesströnd
Mitt faðirvor

Ef öndvert allt þér gengur
og undan halla fer,
skal sókn í huga hafin
og hún mun bjarga þér.
Við getum eigin ævi
í óskafarveg leitt
og vaxið hverjum vanda,
sé vilja beitt.

Þar einn leit naktar auðnir
sér annar blómaskrúð.
Það verður sem þú væntir.
Það vex sem að er hlúð.
Þú rækta rósir vona
í reit þíns hjarta skalt
og búast við því besta
þó blási kalt.

Þó örlög öllum væru
á ókunn bókfell skráð,
það næst úr nornahöndum
sem nógu heitt er þráð.
Ég endurtek í anda
þrjú orð við hvert mitt spor:
Fegurð, gleði, friður –
mitt faðirvor.

Strengir

Steinarnir eru strengir,  
strengina vatnið knýr.  
Gaman það væri´ að vita  
hvað í vatnsins huga býr.  
 
Hvaðan skyldi það koma  
hvert er heitið þess ferð!  
Síðar á öldum söngsins  
samferða því ég verð.  
 
Lyngið á líka strengi,  
leikur blærinn á þá  
söngva sorgar og gleði  
er í sálum kveikja þrá.  
 
Vorljóð draums og vonar  
veröldin syngur öll.  
Berast vil ég með blænum  
burt yfir hæstu fjöll.  

Bærinn Djúpilækur er nú eyðibýli er á Langanesströndinni í Bakkafirði. Við bæinn stendur minnisvarði um Kristján skáld frá Djúpalæk (1916-1994) en hann fæddist þar og ólst upp, í torfbænum sem var við hliðina á steinhúsinu. Kristján var í hópi þekktustu ljóðskálda Íslands á sinni tíð, óvenjulegur persónuleiki, margslunginn og dáður. Hann samdi ljóð, dægurlagatexta og þýddi ljóðin úr leikritum eins og Kardemommubænum og Dýrunum í Hálsaskógi. Dægurlagatexti eftir Kristján sem margir kannast eflaust við er t.d. textinn við Vor í Vaglaskógi.

Áningarstaður og minnisvarði um Kristján er við Djúpalæk. Þar eru borð og bekkir og huggulegt að setjast niður, einnig er fallegt að ganga niður að ósi. Steinarnir þrír í minnisvarðanum tákna “fegurð, gleði og frið” sem eru lokaorðin í ljóðinu Mitt faðirvor eftir Kristján. Ljóðin sem eru á minnisvarðanum er einmitt Mitt faðirvor og Strengir úr barnasögunni um músina Pílu Pínu. [langanesbyggd.is]

Minnisvarðinn stendur við þjóðveginn í Bakkafirði á móti Djúpalæk.


Krosshæð
Enskir menn Langanes

Hér hvíla 11 enskir menn

Krossinn stendur á Krosshæð við Skoruvík á Langanesi

Talið er að þarna hvíli enskir sjómenn sem einhvern tíma hafa komist að landi eftir skipsstrand og ekki náð til bæja.


Arnljótr Ólafsson (1823-1904)
Sauðaneskirkja og minnisvarði
Arnljótur Ólafsson

Arnljótr Ólafsson prestur og rithöfundur
fæddur 21-11-1823
dáinn 29-10-1904
Þ. Hólmfríður Þorsteinsdóttir
kona hans
fædd 22.-10-1839
dáin 8-3-1904.

Minnisvarðinn stendur við kirkjuna.


Minnisvarði um norska sjómenn af “D/S Frithjof”
Norskir sjómenn - Sauðanes

Disse nordmenn omkom ved Langanes da “D/S Frithjof” av Tromsö forliste, 5. oktober 1907.
Rest av Arktisk forening og Tromsö Skipperforening.

Minnisvarðinn er í kirkjugarðinum á Sauðanesi á Langanesi.

Norskir sjómenn

Johannes Larsen
Sigurd Steinarsen – Gregus Larsen
Bernhard Isaksen – Gerhard Krane
Joh. Johansen – Johan Johanessen
Edvin Mortensen – Anders Knutsen
Henrik Andreassen – Theodor Pettersen
Karl Pettersen – Jens Nilsen
Anton Lindquist – Daniel Johansen
Jakob Jakobsen – Petter Pederrsen


Til baka á Norðurland