Minnisvarðar á Suðurlandi
Árnessýsla – Rangárvallasýsla – Skaftafellssýslur – Vestmannaeyjar
Árnessýsla
Þingvellir
Bjarni Benediktsson (1908-1970) – Sigríður Björnsdóttir (1919-1970)

Hér stóð ráðherrabústaðurinn sem brann 10. júlí 1970.
Þar létust Bjarni Benediktsson forsætisráðherra, Sigríður Björnsdóttir kona hans, og Benedikt Vilmundarson dóttursonur þeirra.
Íslenska þjóðin reisti þennan minnisvarða.
Minnisvarðinn stendur undir Hallinum sunnan við Valhöll á Þingvöllum þar sem Ráðherrabústaðurinn eða Konungshúsið stóð. Konungshúsið var byggt á Efri-Völlum 1907 áður en von var á Friðriki VIII konungi til landsins, en var flutt fyrir Alþingishátíðina 1930 á þann stað sem hann var síðan og kallaður Ráðherrabústaður eftir það því ráðherrar nýttu hann.


Arnarbæliskirkja

Hér stóð Arnarbæliskirkja.
Kirkju er fyrst getið í Arnarbæli um 1200 en var lögð niður 1909.
Þessi minnisvarði stendur í gamla kirkjugarðinum í Arnarbæli
Aðalsteinn Sigmundsson (1897-1943)

Aðalsteinn Sigmundsson
Aðalsteinn Sigmundsson, fæddur 10. júlí 1897, d. 16. apríl 1943.
Á 19. sambandsþingi UMFÍ sem haldið var á Akureyri 30. júlí 1955 var samþykkt að reisa í Þrastarskógi þennan minnisvarða um Aðalstein.
Hann sat í stjórn UMFÍ frá árinu 1913-1938, þar af sambandsstjóri frá árinu 1930. skógarvörður Þrastarskógar frá árunum 1924-1934 og 1935-1938.
Minnisvarði þessi var reistur 15. september 1957. [Texti á skildi]

Minnisvarðinn stendur í Þrastarskógi í Grímsnesi.
Lágmyndin af Aðalsteini er eftir Ríkarð Jónsson

Konungssteinn C IX

Konungssteinn Kristjáns IX Danakonungs sem reistur var honum til heiðurs við konungskomuna 1874.
Letrið á steininum 1874 er verk Sverris Runólfssonar sem var íslenskur brautryðjandi í steinhöggi og hafði lært þá iðn í Danmörku. Letrið var endurnýjað árið 2007 að tilhlutan Dansk-Íslenska verslunarfélagsins.
Steinninn stendur i hlíðinni rétt austan við Geysi.
Konungssteinn Friðrik VIII

Konungssteinn Friðriks 8. Danakonungs sem reistur var honum til heiðurs við konungskomuna 1907.
Nú var Sverrir Runólfsson ekki lengur viðlátinn og þá valdist til verksins annar steinhöggvari, Júlíus Schou. Hann var upprunninn í Borgundarhólmi en fluttist til Íslands í fyrstu ásamt tveim öðrum steinsmiðum til að reisa Alþingishúsið. Letrið á steininum var endurnýjað árið 2007 að tilhlutan Dansk-Íslenska verslunarfélagsins.
Steinninn stendur í hlíðinni rétt austan við Geysi
Konungssteinn C X

Konungssteinn Kristjáns X Danakonungs sem reistur var honum til heiðurs við konungskomuna 1921.Það kom einnig í hlut Júlíusar Schou að höggva fangamark Kristjáns X. á steininn við komu hans til Íslands 1921. Letrið á steininum var endurnýjað árið 2007 að tilhlutan Dansk-Íslenska verslunarfélagsins. Steinninn stendur í hlíðinni rétt austan við Geysi
Haukadalur – Kristian Kirk


Á 26. stjórnarári Christians X keypti danskur Íslandsvinur, Direktör, Cand. polit.
Kristian Kirk hið forna höfuðból Haukadal.
Girti, græddi, hefti sandfok, endurbyggði kirkju, og gaf
Skógrækt ríkisins jörðina.
Hákon Bjarnason (1907-1989)

Minningarsúla um Hákon Bjarnason
Súla þessi var reist til minningar um Hákon Bjarnason skógræktarstjóra á 100 ára afmæli skógræktar á Íslandi og 60 ára afmæli skógræktar í Haukadal 1999.
Hákon Bjarnason var skógræktarstjóri frá 1. mars 1935 til 30. júní 1977, eða í 42 ár. Hann hafði víðtæka þekkingu á náttúru Íslands og sögu þess, ásamt mikilli yfirsýn um skóga á norðurhveli jarðar.
Með eldmóði brautryðjandans beitti hann þessari þekkingu til að fegra og bæta gróður á Íslandi. Hann barðist gegn úreltum hugsunarhætti hjarðmannaþjóðfélagsins á Íslandi og var brautryðjandi í að auðga gróður landsins með innflutningi trjátegunda og jurta. Barátta hans breytti í þessu tilliti hugunarhætti mikils hluta íslensku þjóðarinnar.
Myndmál súlunnar
Súluna skar Guðjón Kristinsson, Árbæ í Ölfusi. Súlan hefur fjölbreytt myndmál. Hún er fyrst og fremst norræn að gerð en áhrifa gæti frá myndsúlugerð indána í Ameríku, sem Hákon hreyfst af.
Fótur súlunnar með eldtungunum á að tákna hugsjónaeldinn og kraftinn sem einkenndi störf Hákonar. Súlan lýsir gróðurframvindu á Íslandi með lauftáknum víðis og birkis, baráttunni við erkifjandann, sauðkindina, árangri og lokamarkmiði skógræktarinnar, sem eru afurðirnar efst á súlunni. Ýmis tákn um tengsl við hina ýmsu heimshluta, hvaðan Íslendingar hafa aflað sér fanga við skógræktina, má finna á súlunni: t.d. elg frá Noregi, skallaörn frá Alaska og rússneska björninn. Einni er þar að finna andlit indíana frá Ameríku sem er einkennandi fyrir ,,totemsúlur” frumbyggjanna.
Norrænu áhrifin birtast í landvættum Íslands: Sunnlenski bergrisinn trónir á toppi og hlutar hinna landvættanna birtst víðsvegar um súluna. Fjaðurpenninn er tákn áróðursmeistarans fyrir málstað skóga og skjóls, í nöktu og tötrum klæddu landi.
Hákonarlundur
Til lundarins var stofnað 1939 en þá var ráðist á móana sem hér voru þá, með þeim stærsta plógi sem völ var á. Síðan var herfað með diskaherfi. Flagið var látið liggja óhreyft þar til í apríl 1941, að Hákon Bjarnason og Pálmi Pálsson frá Hjálmsstöðum í Laugardal, sáðu birkifræi, sem ættað var úr Bæjarstaðaskógi, í randir eftir öllu flaginu norðan heimreiðarinnar en breiðsáð var sunnan hennar. Lítið bar á birki næstu árin og 1943 var flagið orðið fallegasta túnslétta. Sigurði Greipssyni á Geysi var því leyft að slá sléttuna og fékkst þokkalegur heyfengur af ilmandi töðu. Sléttan var svo enn slegin sumarið 1944, en þá kom mikið af birkilaufi í heyið, svo hún var ekki slegin oftar.
Birkið óx svo smám saman upp úr grasinu og um 1960, 16 árum eftir að vart varð við laufið í heyinu voru hér orðin hin álitlegustu skjólbelti. Einar Sæmundsen, sem þá var skógarvörður í Haukadal, lét planta talsverðu af sitkagreni og dálitlu af fjallaþin og rauðgreni í skjóli við birkið. Þau tré eru nú mest áberandi.
Hér hefur gróðurframvinda orðið nokkuð á sama veg og í heimkynnum sitkagrenisins í Alaska. Nakið landið klæðist með lauftrjám: Birki, elri, víði og ösp, en sitkagrenið kemur inn á síðari stigum og verður smám saman drottnandi tegund, enda langtum langlífari en lauftrén.
Arbonne International

Arbonne International pure Swiss skin care.
This cairn erected and 10,000 trees planted today by proud representative and their families from Iceland, Norway and USA.
This plaque recognizes all with special thanks to those who made it possible:
Skógrækt ríkisins, Inga Holdö and Gísli Sigurðsson.
Haukadalur 9th day of June, 1990
Stendur ofarlega í Haukadalsskógi
Sandgræðsla

Hér hófst sandgræsla á vegum ríkisins 8. júlí 1907.
Minnisvarðinn var reistur 8. júlí 2007 við Reyki á Skeiðum [sjá Bændablaðið, 15. janúar 2008]
Þór / Ísleifur

Þór / Ísleifur biskup
Verk eftir Pál Guðmundsson á Húsafelli í tilefni af 1000 ára kristni á Íslandi. Steinninn var klofinn í tvennt og merkir heiðni og kristni sem komin eru af sama meiði.
Verkið stendur í Skálholti
Skaftholtsréttir

Elstu heimildir um réttina eru frá 13. öld.
Endurgerð réttarinnar 2000-2009
Vinir Skaftholtsrétta
Stendur við Skaftholtsréttir
Skaftholtsréttir – Fjallkóngar

Skaftholtsréttir
Elstu réttir landsins
Fjallkóngar á Gnúpverjaafrétti á síðustu öld og síðan:
Erlendur Loftsson 1893-1906 Hamarsheiði
Ólafur Bergsson 1907-1927 SkriðufelliJóhann Kolbeinsson 1928-1961 Hamarsheiði
Sigurgeir Runólfsson 1962-1976 Skáldabúðum
Sveinn Eiríksson 1977-1984 Steinsholti
Árni Ísleifsson 1985-2000, 2003 Þjórsárholt
Már Haraldsson 2000-2001 Háholti
Lilja Loftsdóttir 2004- Brúnum
Stendur við Skaftholtsréttir
Þjórsárdalsskógur

Til minningar um hjónin
Hjálmar Rögnvald Bárðarson siglingamálastjóra (1918-2009)
Else Sörensen Bárðarson (1920-2008).
Þau gáfu skerf af eigum sínum til landgræðsluskógræktar og hluta hefur verið varið til að endurheimta skóga í Þjórsárdal.
Með vinsemd og virðingu
Landgræðslusjóður 2012.
Stendur við Hjálparfoss í Þjórsárdal
Ásgrímur Jónsson (1876-1958)

Ásgrímur Jónsson listmálari
fæddist í Rútsstaðahjáleigu árið 1876
Minnisvarði stendur við Timburhóla, ekki langt frá fæðingarstað listamannsins.

Ríkisstjórn Íslands reisti Ásgrími bautastein í kirkjugarði Gaulverjabæjarkirkju.
Bergþór úr Bláfelli

Minnisvarði um Bergþór úr Bláfelli, sem jarðsettur var þar sem heyrðist í kirkjuklukkum og nið Tungufljótsins, sbr. þjóðsöguna um Bergþór úr Bláfelli.
Einar Einarsson (1909-1994)

Einar Einarsson (f. 12.5.1909 – d. 26.8.1994) var fæddur og uppalinn á Urriðafossi. Hann stundaði alla ævi laxveiðar í Þjórsá. Eftir að hann flutti til Reykjavíkur dvaldi hann öll sumur ásamt fjölskyldu sinni við veiðar hér í ánni.
Þjórsá og veiðiskapurinn var líf hans og yndi. Hann þekkti hvern hyl og látur við Urriðafoss. VIð veiðarnar var hann eðlilegur hluti náttúrunnar. Maðurinn og áin voru sem eitt.
Ég stóð við ána og starði
í straumlygnu rétt við klöpp
og hugsun mín lék sér við laxinn
sem leitaði móti straum –
Ég vaknaði upp við að áin
rann inn í mitt ljóð, og minn draum. MJ
Til minningar um Einar Einarsson frá Urriðafossi, 12. maí 2009. [Texti á skildi].

Steinninn stendur við fossinn Urriðafoss í Þjórsá.
Freysteinn Gunnarsson (1892-1976)

Freysteinn Gunnarsson skólastjóri
Kennaraskóla Íslands 1929-1962
f. að Vola 18. ágúst 1892
ólst upp í Hróarsholti
d. 27. júní 1976.
Öllum kom hann til nokkurs þroska.
Nemendur, sveitungar og aðrir vinir þakka


Dr. Helgi Pjeturss (1872-1949)

Dr. Helgi Pjeturss jarðfræðingur
,,Starfsævi hans var á sviði jarðvísinda og heimsfræði.
Það sem þúsundir milljóna hafa haldið vera líf í andaheimi eða góðheimi, er lífið á öðrum hnöttum.
Á nálægum slóðum urðu honum ljósar jökulminjar, sem leiddu hann til þeirrar meginuppgötvunar að ísöld skiptist í jökulskeið og hlýskeið.
Hér í Hlíð átti hann athvarf og mótaði ýmsar merkustu hugmynda sinna.” [Texti á minnisvarða]
Vangamynd gerði Ívar Valgarðsson eftir ljósmynd Jóns Kaldal.
Minnisvarðinn sem var afhjúpaður árið 2010 stendur við bæinn Hlíð í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
Aðrir minnisvarðar eru um dr. Helga í Hellisholtum (sjá næsta minnisvarða) og í Reykjavík.


Dr. Helgi Pjeturss (1872-1949)

Dr. Helgi Pjeturss jarðfræðingur
,,Sumarið 1899 fann Helgi Pjeturss hér í Nónási berglag sem hann sá að mjög líktist jökulruðningi. Það er á milli basaltlaga í snarhallandi berggrunni Hreppanna. Sama sumar fann hann slík berglög víðar í Hreppum. Hann sá að á ísöld höfðu skipst á jökulskeið og hlýskeið löngu áður en landslagið mótaðist sem nú sjáum við.
Hann fylgdi þessari uppgötvun eftir á rannsóknarferðum um Vestur- og Norðurland og fann einnig þar harðnaðan jökulruðning á milli basaltlaga í blágrýtisfjöllum.
Uppgötvun hans leiddi til nýs skilnings á jarðsögu Íslands.
Nú er vitað að bergið í Nónási er tæplega tveggja milljón ára gamalt.
Minningarskjöldur reistur árið 2010 að frumkvæði Garðars Olgeirssonar og Önnu E. Ipsen í Hellisholtum, Heimspekistofu dr. Helga Pjeturss og Kristjáns Sæmundssonar jarðfræðings.” (Texti á íslensku og ensku.)
Minnisvarðinn er festur á klettavegg Nónáss við Hellisholt í Hreppum. Vangamynd eftir Ívar Valgarðsson eftir ljósmynd Jóns Kaldal.
Aðrir minnisvarðar um dr. Helga eru í Hlíð, Skeiða- og Gnúpverjahreppi (hér fyrir ofan) og í Reykjavík.-
Jón Arason biskup (1484-1550)

Jón Arason byskup ljet hér lífið fyrir trú sína og ættjörð 7. nóvember 1550.
Prestur og síðar biskup á Hólum í Hjaltadal 1522 til dauðadags.
Minnisvarði um aftöku stendur í Skálholti
Jón Ólafsson (1920-2001)

Í minningu Jóns Ólafssonar (1920-2001)
gaf fjölskylda hans Skaftholtsréttum þessa fánastöng árið 2007.
Jón var bóndi i Eystra-Geldingaholti og fjallmaður Gnúpverja í áratugi.
Minnisvarðinn stendur við Skaftholtsréttir
Jón Þorkelsson Vídalín (1666-1720)


Jón Þorkelsson Vídalín Skálholtsbiskup
f. 21. mars 1666 – d. 30. ágúst 1720
Við Hallbjarnarvörður eru volgrur og þar var lengi sæluhús, sem rústir sjást af rétt fyrir vestan vörðurnar. Þar í sæluhúsinu lést meistari Jón Vídalín biskup aðfararnótt 30. ágúst 1720 er hann var á leið vestur á Snæfellsnes til að jarðsyngja mág sinn séra Þórð Jónsson á Staðarstað.
Fyrir ofan eru myndir af eldri krossi sem reistur var fyrir nokkrum árum.
Skálholtsfélagið hið nýja lét reisa nýtt minnismerki á 300. ártíð Jóns Vídalín hinn 30. ágúst 2020. Það minnismerki er hér fyrir neðan. Unnið af Páli Guðmundssyni á Húsafelli.
Herra Guð í himnasal
haltu mér við trúna.
Kvíði ég fyrir Kaldadal
kvelda tekur núna.



Minnisvarðarnir standa við Hallbjarnarvörður.
Magnús Helgason (1857-1940) frá Birtingaholti

Séra Magnús Helgason frá Birtingaholti
Skólastjóri Kennaraskóla Íslands 1908-1929.
Minnisvarðinn stendur á Flúðum.
Páll Bjarnason (1884-1968)

Pálslundur
Til minningar um Pál Bjarnason formann Umf. Samhygðar
f. 30.7.1884 – d. 27.2.1968 og konu hans
Elínu Guðmundsdóttur, f. 6.4.1891 – d. 9.3.1915.
Þau bjuggu í Gerðum
Ingibjörg Pálsdóttir gaf trén hér í kring.
Minnisvarðinn og Pálslundur eru í Timburhólum
Sigríður Tómasdóttir (1871-1957)

Sigríður Tómasdóttir var fædd í Brattholti 24. febrúar 1871 og bjó þar alla ævi. Hún var næstelst af 13 börnum Margrétar Þórðardóttur húsfreyju og Tómasar Tómassonar bónda í Brattholti. Sjö af börnunum komust til fullorðinsára. Sigríður varð fljótlega leiðtoginn í systkinahópnum, þar sem eldri systir hennar og eini bróðirinn fluttu snemma að heiman. Systrunum sem eftir voru þótti Sigríður oft heldur ströng.
Sigríður í Brattholti var meðalkona á hæð og nokkuð þrekin. Hún þótti fríð sýnum á yngri árum og hafði mikið og fagurt ljóst hár. Hún var víkingur til verka og vann framanaf að mestu við útistörf.
Það var í kringum 1875 sem ferðamenn fóru almennt að venja komur sínar að Gullfossi. Fram að þeim tíma var ekki auðvelt að komast að fossinum, enda yfir vegleysur og óbrúaðar ár að fara. Sigríður í Brattholti og systur hennar fylgdu oft gestum að Gullfossi og þær lögðu fyrsta stíginn niður að fossinum.
Sigríður í Brattholti lést haustið 1957 á 87. aldursári.
Minnisvarðinn sem hér stendur (við Gullfoss) var reistur árið 1978 og er vangamyndin á honum eftir Ríkarð Jónsson myndhöggvara.

Sigurður Greipsson (1897-1985)

Hér í Haukdal fæddist Sigurður Greipsson 22. ágúst 1897. Á Söndunum við Geysi reisti hann hús og stofnaði íþróttaskóla 1927.
Íþróttaskólinn í Haukdal var síðan starfræktur samfellt til 1970. Skóladvalar nutu 823 piltar.
Sigurður Greipsson var Glímukappi Íslands samfellt í 5 ár, 1922 til 1927.
Formaður Héraðssambandsins Skarphéðinn í 44 ár, 1922 til 1966.
Eiginkona Sigurðar var Sigrún Bjarnadóttir frá Bóli í Biskupstungum, f. 1903 d. 1979.
Sigurður lést 19. júlí 1985.
Minnisvarðinn sendur í Haukdalsskógi

Valdimar Briem (1848-1930)

Valdimar Briem sálmaskáld
f. 1.2.1848 – d. 3.5.1930
Prestur á Stóra-Núpi
Einn geisli lýst upp getur myrkan klefa.
einn neisti kveikt í heilum birkilundi,
einn dropi vatns sér dreift um víðan geiminn.
Ein hugsun getur burt rýmt öllum efa,
eitt orð í tíma vakið sál af blundi,
einn dropi líknar drottins frelsað heiminn.
Minnisvarðinn er eftir Helga Gíslason og stendur á hlaðinu á Stóra-Núpi.
Úlfljótsvatn
Úlfljótsvatn

Íslandsklukka.
Óskar Pétursson (1906-1989)

Til minningar um Óskar Pétursson skátaforingja
Skátar reistu
Óskar var skáti og starfaði sem slíkur í 73 ár og hefur varla nokkur maður verið skáti jafn lengi.
Minnisvarðinn stendur á hlaðinu á skátabúðunum á Úlfljótsvatni

Grímsnes
Skógræktarfélag Árnesinga stofnað 2. nóvember 1940

Framkvæmdastjórar 1940-2010
Óskar Þór Sigurðsson, skólastjóri á Selfossi, verkstjórn á Snæfoksstöðum sumurin 1958-1970Garðar Jónsson, framkvæmdastjóri 1963-78,
Böðvar Guðmundsson, skógarvörður á Selfossi, framkvæmdastjóri 1978-Félagið keypti Snæfoksstaði 4. apríl 1954 og reisti minnisvarðann sumarið 2010 á 70. afmælisári félagsins.
Formenn félagsins 1940-2010Jón Ingvarsson, vegaverkstjóri á Selfossi, formaður 1940-1946;Ólafur Jónsson, kaupmaður í Hlöðum, formaður 1946-1974;Sigurður Ingi Sigurðsson, oddviti á Selfossi, formaður 1974-1981;Kjartan Ólafsson, alþingismaður í Hlöðutúni, formaður 1981-1995, 2009-Óskar Þór Sigurðsson, skólastjóri á Selfossi, 1996-2009Einnig eru allir stjórnarmenn á 70 árum taldir upp á einum skildi, en þeir eru 24 talsins
Félagsdeildir:
Skógræktarfélag Árnesinga tók upp deildarskiptingu á aðalfundi 14. apríl 1951.Félagsdeildir hafa verið starfandi í flestum hinna fornu hreppa í Árnessýslu og gróðursett er í heimalönd.
Taldar eru upp 16 deildir Skógræktarfélagsins í Árnessýslu.
Minnisvarðinn stendur á Snæfoksstöðum
Tómas Guðmundsson (1901-1983)

Tómas Guðmundsson skáld
F. á Efri-Brú 1901
D. í Reykjavík 1983.
Minnisvarðinn stendur við Efri-Brú í Grímsnesi
Fljótið helga
Að haustnóttum einn ég að heiman geng
því harms míns og gleði bíður
hið myrka fljót, sem við flúð og streng
svo fallþungum niði líður.
Það kom hingað forðum á móti mér
hvern morgun í sóldýrð vafið.
Í kvöld á það sefandi söng, sem ber
minn síðasta vordag í hafið. …
Og geiglausum huga ég held til móts
við haustið, sem allra bíður.
Og sefandi harmljóð hins helga fljóts
úr húminu til mín líður.
Eins veit ég og finn að það fylgir mér
um firð hinna bláu vega,
er hníg eitt síðkvöld að hjarta þér,
Sólheimar
Pétur Sveinbjarnarson (1945-2019)

Pétur Sveinbjarnarson f. 23. ágúst 1945 – hann lést á Kanaríeyjum 23. desember 2019.
Stjórnarformaður Sólheima 1979-2017.
Frumkvöðull, eldhugi og hamhleypa til verka.
Minnisvarðinn stendur á Sólheimum.
Pétur kom víða við í íslensku þjóðlífi og var sæmdur fálkaorðu árið 2007 fyrir starf sitt fyrir Sólheima í Grímsnesi. Þar gegndi hann stjórnarformennsku í 38 ár.
Pétur var kjörinn í stjórn Camphill Village Trust, sjóðs sem á og rekur fjölda byggðahverfa og miðstöðva í Bretlandi sem veita fólki með sérþarfir þjónustu á sviði búsetu, atvinnu og félagsstarfs, árið 2006. Pétur var fyrsti erlendi ríkisborgarinn sem kosinn var inn í stjórn sjóðsins.
Pétur var heiðursfélagi Knattspyrnufélagsins Vals.
Pétur var virkur í starfi Sjálfstæðisflokksins og var formaður Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna.
Pétur gegndi stöðu framkvæmdastjóra nefndarinnar sem bar ábyrgð á upptöku hægri umferðar hérlendis árið 1968.
Pétur var framkvæmdastjóri Þróunarfélags miðborgar Reykjavíkur á tíunda áratugnum. Hann átti og rak um árabil veitingastaðinn Ask, Veitingamanninn og fleiri fyrirtæki.

Sesselja Hreindís Sigmundsdóttir (1902-1974)

Listaverk eftir Jón Sigurpálsson gert í minningu Sesselju Hreindísar Sigmundsdóttur.
Á stalli verksins er nafn Sesselju og orðin sem hún svaraði með þegar hún var spurð hvernig hún ætlaði að framkvæma það sem hugur hennar stóð til:
,,Mér leggst eitthvað til.”
Verkið stendur á aðaltorgi Sólheima í Grímsnesi
Sesselja Hreindís Sigmundsdóttir (1902-1974)

Sesselja Hreindís Sigmundsdóttir fæddist í Hafnarfirði 5. júlí 1902. Foreldrar hennar voru Kristín Símonardóttir og Sigmundur Sveinsson. Systkini Sesselju voru sjö; Steinunn, Sigríður, Gróa, Þórarinn, Kristinn, Lúðvik og Símon. Sesselja fluttist tveggja ára að Brúsastöðum í Þingvallasveit er faðir hennar tók við rekstri veitingahússins Valhallar. Árið 1919 fluttist fjölskyldan til Reykjavíkur.
Sesselja stundaði nám í sex ár í Danmörku, Sviss og Þýskalandi, m.a. í uppeldisfræði, barnahjúkrun og rekstri barnaheimila og var fyrsti Íslendingurinn sem lærði umönnun þroskaheftra.Á námsárunum í Þýskalandi kynntist Sesselja kenningum dr. Rudolf Steiner (1861 – 1925 ) – ”anthroposophy” eða mannspeki. Sesselja stundaði einnig nám í garðyrkju, blómarækt og meðferð alifugla.
Sesselja leigði jörðina Hverakot af barnaheimilisnefnd Þjóðkirkjunnar og stofnaði Sólheima 28 ára gömul, á afmælisdegi sínum, þann 5. júlí 1930. Hún ól upp fjölmörg fósturbörn og var brautryðjandi í uppeldismálum og umönnun þroskaheftra á Íslandi. Sesselja var frumkvöðull í lífrænni ræktun, ekki aðeins á Íslandi heldur líka á Norðurlöndum og er í raun fyrsti íslenski umhverfissinninn.
Eftir að Sesselja flutti til Íslands 1930 stóð hún í bréfaskriftum við fjölda fólks í Danmörku, Þýskalandi, Hollandi, Englandi og Sviss, m.a. um lífeflda ræktun (bio-dynamics) og mannspeki og ferðaðist hún reglulega til þessara landa. Meðal þeirra sem hún átti í bréfaviðskiptum voru dr. Karl König, stofnandi Camphill-hreyfingarinnar í Bretlandi, Sólveig Nagel frá Noregi og Caritu Stenback frá Finnlandi en þær voru frumkvöðlar í málefnum þroskaheftra í sínum heimalöndum.
Sesselja ættleiddi tvö börn: Hólmfríði og Elvar og ól upp 14 fósturbörn. Elvar lést 27. nóvember 1963. Sesselja giftist Rudolf Richard Walter Noah 17. mars 1949. Noah var þýskur tónlistarmaður og kennari, sem kom til Íslands 1935 en var handtekinn af breska hernum 5. júlí 1940 og fluttur í fangabúðir til Englands. Noah fékk ekki leyfi til að koma til Íslands fyrr en 1949 eftir níu ára fjarveru. Hann fór aftur til Þýskalands 7. mars 1953 án þess að Sesselja og hann skildu formlega. Noah lést í Þýskalandi 1967.
Sesselja lést á Landakotsspítala í Reykjavík 8. nóvember 1974, 72 ára gömul. Jónína Michaelsdóttir rithöfundur skrifaði bókina ,,Mér leggst eitthvað til – sagan um Sesselju Sigmundsdóttur og Sólheima”. Bókin var gefin út af Styrktarsjóði Sólheima árið 1990.
Stendur framan við Sesseljubúð á Sólheimum.


Minnisvarði

Minnisvarði um látna íbúa sem hvíla fjarri Sólheimum
Blessuð sé minning þeirra.
Jesú Kristur sagði: Ég lifi og þér munuð lifa! Jóh. 14:19.
Stendur í kirkjugarðinum á Sólheimum
Þorlákshöfn
Egill Thorarensen (1897-1961)

Hann breytti verstöðinni Þorlákshöfn í nútíma bæ.
Minnisvarðinn stendur í miðbæ Þorlákshafnar og er eftir Gunnstein Gíslason
Annar minnisvarði um Egil er á Selfossi.
Hveragerði
Elna Ólafsson (1912-1998) – Unnsteinn Ólafsson (1913-1966)

Hjónin Elna Ólafsson og Unnsteinn Ólafsson
skólastjóri 1939-1966.
Unnsteinn var skólastjóri Garðyrkjuskólans á Reykjum í Ölfusi.
Nemendur og vinir reistu honum þennan minnisvarða sem stendur í Unnsteinslundi ofan við garðyrkjuskólann. Helgi Gíslason myndhöggvari gerði minnisvarðann.


Gísli Sigurbjörnsson 1907-1994


Gísli Sigurbjörnsson fæddist 29. okt. 1907 í Reykjavík. Hann lést 7. janúar 1994.
Hann lauk prófi frá Verslunarskóla Íslands 1927. Hann stofnaði Elli- og hjúkrunarheimilið Grund árið 1938 og var forstjóri þess frá stofnun og jafnframt forstjóri Áss í Hveragerði frá 1952. Auk þess að vinna brautryðjendastarf í þágu aldraðra sinnti Gísli mikið íþróttamálum, bindindismálum og ferðamálum alla tíð. Hann var einn af stofnendum Krabbameinsfélags Íslands og formaður Knattspyrnufélagsins Víkings um skeið. Hann gegndi auk þess fjölda trúnaðar- og áyrgðarstarfa á ýmsum vettvangi.
Minnisvarðinn var afhjúpaður 3. sept. 1995. Hann stendur á lóð Dvalarheimilisins Áss í Hveragerði. Brjóstmyndina gerði Helgi Gíslason myndhöggvari.
Gunnar Björnsson

Trjálundur þessi er til minningar um
Gunnar Björnsson
garðyrkjubónda í Álfafelli 1913-1977.

Lárus J. Rist (1879-1964)

Munit, at léð er lýði land fyrir kraft og anda. [M. Joch.]
Árið 1936 kom Lárus J. Rist sundkennari frá Akureyri til Hveragerðis. Hann hafði stundað nám við lýðháskólann Askov í Danmörku og lokið prófi frá fimleikaskólanum í Kaupmannahöfn árið 1906. Lárus hafði um árabil unnið við sundkennslu á Akureyri og 6. janúar 1907 vann hann það afrek að synda yfir Eyjafjörð. Lárus gekk í Ungmennafélag Ölfusinga og varð fljótlega mikilvirkur í félagsstarfinu. Hann var stórhuga og setti sér það markmið að í Hveragerði skyldi byggð vegleg sundlaug, stærsta sundlaug landsins. Lárus tók forystu í sundlaugarnefnd og valdi sundlauginni stað í gilinu fyrir neðan gróðurskálana á Reykjum. Þar seytlaði volgur lækur milli grasigróinna bakka og hjálpaði hann til að grafið var fyrir lauginni á þessum stað.
Í ágústmánuði árið 1959 var afhjúpaður minnisvarði um Lárus J. Rist í Laugarskarði í tilefni áttræðisafmæli hans. Þetta var brjóstmynd gerð af listamanninum Ríkarði Jónssyni.
Það var hátíðarblær yfir staðnum þennan dag og hundrað börn og unglingar steyptu sér til sunds í laugina. Jóhannes úr Kötlum flutti frumsamið kvæði að fornum hætti. Gunnar Benediktsson rithöfundur las kvæði Matthíasar Jochumssonar í tilefni af Eyjarfjarðarsundi Lárusar árið 1907. [Af vef Hveragerðis]
Minnisvarðinn stendur í Laugarskarði við sundlaug Hveragerðis.


Unnsteinslundur

Árið 1943 átti Unnsteinn Ólafsson skólastjóri frumkvæði að gerð grasagarðs hér í hlíðinni, sem nú er við hann kenndur.
Á sumardaginn fyrsta 1998
Garðyrkjuskóli ríkisins

Blóm í bæ 2010

Blóm í bæ 2010
Þessi silfurreynir er gjöf frá Garðyrkjufélagi Íslands til Hveragerðisbæjar í tilefni af 125 ára afmæli félagsins.
Hann er beinn afkomandi elsta trés landsins sem talið er að hafi verið gróðursett 1884 við hús Schierbech landlæknis við Suðurgötu í Reykjavík.

Árborg (Selfoss, Eyrarbakki, Stokkseyri)
Egill Gr. Thorarensen (1897-1961)

,,Með eins manns anda ávannst oft stórvirki þúsund handa” (EB)
Egill Gr. Thorarensen – Jarlinn í Sigtúnum ,,haukskyggn, hamrammur og munamildur” (K.f.D)
Egill (1897-1961) var kaupmaður í Sigtúnum á Selfossi 1918-1930. Hann stýrði Kaupfélagi Árnesinga frá 1930, tók við formennsku í Mjólkurbúi Flóamanna ári síðar og gegndi báðum störfum til æviloka. Hann var óumdeilanlenga fremsta athafnaskáld Sunnlendinga í áratugi og ruddi Selfossi braut sem höfuðstað Suðurlands og Þorlákshöfn sem hafnarbæ.
,, … allharður undir brún að líta, en ef betur er að gætt, bros undir hvarmi og blik gáfna og góðmennsku í augum.” (Á.Þ.)

Verkið gerði Ragnhildur Stefánsdóttir og stendur það gegnt Ölfusárbrú í nýja miðbænum á Selfossi.
Annar minnisvarði um Egil er í Þorlákshöfn
Júlíus Steingrímsson (1910-2003)

,,Hornsteinn og aðrir steinar á og við horn”
Til minningar um Júlíus Steingrímsson velunnara Skógræktarfélags Selfoss.

Verkið er eftir Þór Sigmundsson og stendur í Hellisskógi á Selfossi
Stefanía Gissurardóttir (1909-1989) – Sigurður Pálsson (1901-1987)

Minnisvarði um heiðurshjónin Stefaníu Gissurardóttur og Sigurð Pálsson vígslubiskup.
Fyrsti prestur á Selfossi 1952-1971
Heiðursborgari Selfossbæjar 1981.
Sr. Sigurður var einnig vígslubiskup í Skálholtsbiskupsdæmi 1966-1983.
Að lokinni messu í morgun, 22.3.2009, var vígður veglegur minnisvarði um heiðurshjónin sr. Sigurð Pálsson og frú Stefaníu Gissurardóttur sem voru burðarásar Selfosskirkju frá upphafi. Sólin skein og athöfnin sem var utandyra, var falleg þar sem Sigurður vígslubiskup Sigurðarsson sonur þeirra hjóna flutti predikun.
Frumkvæði að þessu kom frá Birni I. Gíslasyni sóknarnefndarmanni en sveitarfélagið Árborg styrkti þetta framtak. Þorvaldur Guðmundsson afhjúpaði svo minnisvarðan ásamt Eysteini Ó. Jónassyni formanni sóknarnefndar.
Þetta framtak var öllum hlutaðeigandi til mikils sóma. [ELA]

Minnisvarðinn stendur við Selfosskirkju.
269. flugsveit Konunglega breska flughersins

Til minningar um 269. flugsveit Konunglega breska flughersins sem dvaldi að Kaldaðarnesi á árunum 1941-1943.
Reistur 10. ágúst 1999
Flugfélagið Atlanta ehf, Viðhald og skipulagning ehf
og Flugmálafélag Íslands, meðlimur í F.A.I.

In remembrance of the 269 squadron RAF
based in Kaldaðarnes 1941-1943.
Erected August 10th 1999
Air Atlanta Icelandic Ltd., Maintenance and Planning Ltd.
and the Icelandic Aero Club, member of FAI
Fabricated by Ingvar Þórðarson
Tryggvagarður

Skógræktarfélag Árnesinga hóf ræktun Tryggvagarðs 1941 í tilefni 50 ára afmælis fyrstu brúar yfir Ölfusá og til að minnast Tryggva Gunnarssonar brúarsmiðs. Tryggvagarður var fyrsta verkefni félagsins, sem stofnað var 2. nóvember 1940.
Skógræktarfélag Árnesinga gaf Selfosshreppi Tryggvagarð 10. apríl 1954
og reisti þennan minnisvarða 2010. Minnisvarðinn stendur í Tryggvagarði.
Annar minnisvarði um Tryggva er í alþingisgarðinum í Reykjavík.
Stokkseyri
Minnisvarði um drukknaða sjómenn frá Stokkseyri

Minnisvarði um drukknaða sjómenn frá Stokkseyri
Minnisvarðinn stendur á Kirkjutorgi við Stokkseyrarkirkju.
Varðann teiknaði Elfar Þórðarson. Varðann afhjúpaði Forseti Íslands, Vigdís Finnbogadóttir á Sjómannadaginn, 5. júní 1998.
Páll Ísólfsson (1893-1974)

Páll Ísólfsson tónskáld 1893-1974
Páll fæddist á Stokkseyri. Til Reykjavíkur kom hann árið 1908 og lærði tónlist hjá Sigfúsi Einarssyni. Hann lærði á orgel hjá Karl Straube í Leipzig (1913-18). Páll fór síðan til Parísar til frekara náms árið 1925 og nam þar hjá Joseph Bonnet. Að því loknu hóf Páll störf við tónlist á Íslandi. Hann varð forystumaður í íslensku tónlistarlífi um áratugi og orgelsnillingur. Páll var stjórnandi Lúðrasveitar Reykjavíkur frá 1924-1936 og skólastjóri Tónlistarskólans í Reykjavík 1930 til 1957. Hann var organisti Fríkirkjunnar í Reykjavík 1926-1939 og síðan við dómkirkjuna í Reykjavík frá 1939-1967. [Wikipedia]
Ragnar Jónsson (1904-1984)

Kría
Minnisvarði um Ragnar Jónsson í Smára.
Minnisvarðinn stendur í trjálundi milli Eyrarbakka og Stokkseyrar og er eftir Sigurjón Ólafsson
Minnisvarði um drukknaða frá Eyrarbakka

Til minningar um sjómenn sem farist hafa frá Eyrarbakka.
Á stallinum stendur: Björgunarsv. Björg.
Verkið er eftir Vigfús Jónsson og stendur þar sem verslunarhús og pakkhús stóðu áður.
Vb. Hafrún ÁR 28

Til minningar um skipverja á vb. Hafrúnu ÁR 28 sem fórst 2. mars 1976.
Ágúst Ólafsson
f. 12. nóv. 1949
Guðmundur E. Sigursteinsson
f. 18. nóv. 1957
Haraldur Jónsson
f. 3. apríl 1955
Ingibjörg Guðlaugsdóttir
f. 6. júlí 1937
Jakob Zóphóníasson
f. 24. febr. 1931
Júlíus Rafn Stefánsson
f. 25. febr. 1955
Karl Valdimar Eiðsson
f. 5. júní 1943
Þórður Þórisson
f. 11. des. 1943

Lát akker falla ég er í höfn.
Ég er hjá frelsara mínum.
Far vel, þú æðandi dimma Dröfn.
Vor Drottinn bregst ekki sínum.
Á meðan akker í Ægi falla
ég alla vinina heyri kalla
sem fyrri urðu hingað heim.
H.A. Tandberg. Þýð. Vald. V. Snævar
Minnisvarðinn stendur í kirkjugarðinum á Eyrarbakka.
Rafstöð á Eyrarbakka

Til minningar um rafstöðina á Eyrarbakka 1919-1947.
Kasthjól af síðasta rafal rafstöðvarinnar.
Verkið stendur við aðalgötuna í gegnum þorpið
Laugarvatn
Bjarni Bjarnason (1889-1970)

Bjarni Bjarnason skólastjóri
1929-1959.
Alþingismaður 1934-1942.

Brjóstmynd eftir Ásmund Sveinsson. Minnisvarðinn stendur við Héraðsskólann á Laugarvatni
Húnbogi Hafliðason (1891-1977)

Minningarreitur Húnboga Hafliðasonar
frá Hjálmsstöðum
f. 27.11.1891 – d. 12.2.1977

Reiturinn er rétt vestan við byggðina á Laugarvatni
Jónas Jónsson (1885-1968) frá Hriflu

Gagnfræðapróf Akureyri 1905. Nám í lýðháskólanum í Askov á Jótlandi 1906–1907, í kennaraháskólanum í Kaupmannahöfn 1907–1908. Kynnti sér skólamál í Þýskalandi, Frakklandi og Englandi 1908–1909 með styrk úr landssjóði, dvaldist þá m.a. eitt missiri á Ruskin College í Oxford.
Kennari við unglingaskólann á Ljósavatni 1905–1906. Kennari við Kennaraskólann í Reykjavík 1909–1918. Skólastjóri Samvinnuskólans frá stofnun hans haustið 1919–1927 og 1932–1955. Skipaður 28. ágúst 1927 dóms- og kirkjumálaráðherra, lausn 20. apríl 1931, skipaður 20. ágúst 1931 dóms- og kirkjumálaráðherra að nýju, lausn 28. maí 1932, en gegndi störfum til 3. júní.
Kosinn 1925 í bankamálanefnd, 1926 í alþingishátíðarnefnd. Í dansk-íslensku ráðgjafarnefndinni 1926–1939. Í Þingvallanefnd 1928–1946. Í menntamálaráði 1934–1946. Tók sæti í bankaráði Landsbankans 1927 og 1936, í orðunefnd 1935–1944. Forseti Þjóðvinafélagsins 1940–1941. Í skipulagsnefnd atvinnumála 1934. Formaður Framsóknarflokksins 1934–1944. Í bæjarstjórn Reykjavíkur 1938–1942. Í skipulagsnefnd bygginga við Lækjargötu 1943.
Landskjörinn alþingismaður 1922–1934, alþingismaður Suður-Þingeyinga 1934–1949 (Framsóknarflokkur).
Dóms- og kirkjumálaráðherra 1927–1931 og 1931–1932.
Milliþingaforseti efri deildar 1932 og 1933.
Afkastamikill rithöfundur, skrifaði bækur, bókarkafla og greinar í blöð og tímarit. Samdi kennslubækur, oft endurprentaðar, og skrifaði greinar um menn og málefni: skólamál, samvinnumál, þjóðfélagsmál o. fl. — Jónas Kristjánsson annaðist útgáfu bókarinnar: Jónas Jónsson frá Hriflu. Ævi hans og störf (1965). Indriði G. Þorsteinsson skrifaði: Samtöl við Jónas (1977). Guðjón Friðriksson skrifaði ævisögu Jónasar Jónssonar í þremur bindum: Með sverðið í annarri hendi og plóginn í hinni. Dómsmálaráðherrann. Ljónið öskrar (1991–1993).
Ritstjóri: Skinfaxi (1911–1917). Tímarit íslenskra samvinnufélaga (1917–1925). Samvinnan (1926– 1928 og 1931–1946). Ófeigur (1944–1956). Landvörn (1946). Landvörn (1948–1953). [Alþ.]
Minnisvarðinn með brjóstmynd eftir Einar Jónsson stendur í skógarlundi á Laugarvatni.
Aðrir minnisvarðar um Jónas er við Sambandshúsið við Sölvhólsgötu í Reykjavík og við háskólann á Bifröst..
Laugarvatnshjónin
Böðvar Magnússon (1877-1966) – Ingunn Eyjólfsdóttir (1873-1969)

Þau tengdust Laugarvatni sterkum böndum. Forfeður Ingunnar höfðu búið á Laugarvatni óslitið í margar aldir en Böðvar flutti þangað 10 ára gamall með föður sínum Magnúsi Magnússyni, sem var seinni maður Ragnheiðar Guðmundsdóttur, móður Ingunnar.Böðvar og Ingunn hófu búskap í Útey í Laugardal árið 1900 en árið 1907 tóku þau við búi á Laugarvatni eftir foreldra sína og bjuggu þar stórbúi í tvo áratugi. Þau eignuðust tólf börn, sem komust til fullorðinsára, 11 dætur og einn son. Afkomendur þeirra voru hátt á sjötta hundrað árið 2014.Stofnun héraðsskóla á Suðurlandi og staðarval átti sér langan aðdraganda. Talið er að ákvörðun Laugarvatnshjónanna um að láta ættaróðal sitt af höndum undir skólasetur hafi skipt sköpum um endanlegt staðarval og flýtt fyrir byggingu skólans sem tók til starfa árið 1928. Héraðsskólinn hefur síðan verið tákn Laugarvatns og minnisvarði um hugsjón Böðvars og Ingunnar um að staðurinn yrði mennta- og menningarsetur.Böðvar var snemma landsþekktur vegna baráttu sinnar fyrir stofnun héraðsskólans og ritstarfa. Hann var formaður byggingarnefndar skólans, fyrsti formaður skólanefndar og sat í skólanefnd um árabil. Böðvar var hreppstjóri Laugarvatnshrepps í 58 ár frá 1902-1960. Eftir hann liggja m.a. bækurnar Undir tindum, ævisöguþættir og sagnir og Dýrasögur auk fjölda tímarits- og blaðagreina. [Texti á upplýsingaskilti á staðnum]


Minnisvarðinn stendur sunnan við Menntaskólann á Laugarvatni í litlum trjálundi.
Ungmennafélag Íslands

Ungmennafélag Íslands óskar skólunum að Laugarvatni og Laugdælingum til hamingju með glæsilegan íþróttaleikvang. Þökkum fyrir góða aðstöðu og veitta aðstoð við framkvæmd 21. landsmóts UMFÍ 14.-17. júlí 1994.
Ungmennafélag Íslands.


