Jón Sigurpálsson (1954-2023)

Jón fæddist í Reykjavík 2. ágúst 1954. Hann stundaði nám við Myndlistarskóla Reykjavíkur og Myndlistar- og handíðaskóla Íslands áður en hann hélt til Hollands árið 1978. Þar stundaði hann myndlistarnám við De Vrije Academie í Haag og í Rijksakademie van Beeldende Kunsten í Amsterdam.

Jón varð safnastjóri Byggðasafns Vestfjarða og Listasafns Ísafjarðar árið 1984. Hann byggði upp Byggðasafnið í Neðstakaupstað á Ísafirði, eina heillegustu samstæðu húsa frá 18. öld á Íslandi, og hafði umsjón með húsunum þar. Hann hafði forgöngu um að Edinborgarhúsið á Ísafirði yrði gert upp og hafið til vegs og virðingar á nýjan leik sem Menningarhús Ísafjarðar. Hann var einn af stofnendum gallerísins Slunkaríkis og endurbyggði hið fornfræga kúabú Vilmundar Jónssonar landlæknis í Tungudal, þar sem hann bjó til dauðadags. Jón beitti sér fyrir ýmsum uppbyggingarverkefnum á Vestfjörðum, til dæmis í Ósvör í Bolungarvík, Hrafnseyri við Arnarfjörð og Litla-Bæ í Skötufirði. Þá barðist hann fyrir því að fyrsta varðskip Íslendinga, María Júlía, yrði varðveitt, og var einn af forsvarsmönnum Hollvinafélagsins Maríu Júlíu.

Þótt Jón hefði ærinn starfa við safnastjórn stundaði hann ávallt list sína meðfram starfinu, ekki síst við gerð skúlptúra. Hann hélt fjölda sýninga bæði hér heima og erlendis og má sjá verk hans víða um landið og erlendis. Hann sat í stjórn Myndhöggvarafélags Reykjavíkur og í stjórn Myndlistarfélags Ísafjarðar alla tíð. Hann var bæjarlistamaður Ísafjarðar, hlaut viðurkenningu Sambands ísl. sjóminjasafna 2016 og var kjörinn heiðursfélagi í Félagi ísl. safna og safnamanna 2021. Þá er ógetið tónlistaráhuga hans, en hann lærði um skeið á kontrabassa sem kom sér vel þegar vinahópurinn stofnaði hljómsveitina Diabolus in Musica. [Reynir Traustason – Mannlíf]

Jón Sigurpálsson lést 13. júní 2023.


Útilistaverk Jón Sigurpálssonar.
Það skal tekið fram að hér er ekki um tæmandi lista yfir verk Jóns Sigurpálssonar að ræða.

Verkið stendur á torgi á Sólheimum í Grímsnesi

Jónsgarður Ísafirði - Jón Sigurpálsson

Verkið sendur í Jónsgarði á Ísafirði

Dynjandi (2000)

Verkið stendur við Orkubú Vestfjarða á Ísafirði

Einar Guðfinnsson Bolungarvík - Jón Sigurpálsson

Minnisvarði um Einar Guðfinnsson og eiginkonu hans í Bolungarvík.

Grjóthlaðið er hannað af Jóni Sigurpálssyni en lágmyndin er eftir Ríkeyju Ingimundardóttur.

Dýrafjörður - Jón Sigurpálsson
Kaleikur (1998)

Verkið stendur við Bessastaði í Dýrafirði

Stefán frá Hvítadal - Jón Sigurpálsson
Þrjú skáld (2008)

Minnisvarði um skáldin Stein Steinarr, Stefán frá Hvítadal og Sturlu Þórðarson. Staðsetning við Tjarnarlund í Saurbæ var valin með hliðsjón af því að frá staðnum sjást þrír bæir sem skáldin tengjast. 

Ragnar H. Ragnar - Jón Sigurpálsson
Kuml (1989)

Minnisvarði um Ragnar H. Ragnar tónlistarskólastjóra. Verkið er á Ísafirði.

Breskir sjómenn Patreksfirði - Jón Sigurpálsson
Sálumessa (1998)

Verkið er á Patreksfirði.