Kjölur
Beinhóll

Beinahóll á Kili
Við þennan hól urðu úti í nóvember 1780 Reynistaðarbræður Bjarni og Einar Halldórssynir.
Einnig Sigurður Þorsteinsson á Daufá og Guðmundur Daðason frá Reyni.
Í sömu ferð týndi Jón Austmann lífi á leið til byggða.
Steinninn var reistur árið 1971. [Texti á steini.]
Guðlaugur Guðmundsson frá Sunnuhlíð í Vatnsdal
hafði forgang um að þessi minnisvarði var reistur.
Þáttur um Reynistaðabræður á Ísmus



Minnisvarðinn stendur um 7 km í vestur frá veginum yfir Kjöl, norðan Kjalfells

Við upphaf leiðar að Beinhól þar sem Reynistaðarbræður urðu úti fyrir löngu með fjárrekstur var mér vandi á höndum þar sem á Beinhól er minnisvarði sem mig vantaði mynd af. Þangað er 7 km leið yfir hraun og ófærur og sá ég fram á að þurfa að sleppa þessum minnisvarða þar sem gangan mundi taka a.m.k. 4-5 klst. Á staðnum voru þá þrír herramenn með fjórhjól og er skemmst frá því að segja að þeir buðu mér að vera með þeim í ferð að Beinhól sitjandi aftan á hjá einum þeirra. Þarna voru komnir þeir Reynistaðarbræður, Jón og Helgi ásamt Kristjáni félaga þeirra á leið á Beinhól.
Það hafa ekki allir farið með Reynistaðabræðrum að Beinhól …
Ég heppinn – Þakka ykkur innilega fyrir strákar …
Geir Zoëga 1885-1959

Geir Zoëga vegamálastjóri
forseti FÍ 22 ár
Geir G. Zëga fyrrv. vegamálastjóri forseti Ferðafélags Íslands í undanfarin 22 ár, lézt að heimili sínu, Túngötu 20 í Reykjavík, hinn 4. janúar [1959].
Hann var einn af stofnöndum Ferðafélagsins og varaforseti þess frá upphafi, en forseti var hann kjörinn snemma á árinu 1937 og síðan ávallt einróma endurkjörinn.
Þegar F.Í. var stofnað, var Geir Zoëga um fertugt og þá þegar reyndur ferðamaður og þrautkunnugur um allt land., bæði í byggðum og óbyggðum. Það fylgdi starfi hans að fara víða og líta eftir vega og brúagerðum. Hann hafði yndi af náttúrufegurð landsins og vildi stuðla að því, að sem flestir fengju tækifæri til að njóta hennar.
Í stjórn F.Í. hafði Geir farsæla forustu um byggingu sæluhúsa. Hann var glöggur fjármálamaður, gætinn og forsjáll, enda naut F.Í. þeirra kosta hans á marga lund. Hann lét m.a. gera vandað ferðamannakort af Íslandi, og bætti það úr brýnni þörf, auk þess sem það var og er félaginu góð tekjulind. Sem vegamálastjóri lét hann laga ýmsa fjallvegi og hafði þá meðfram í huga óskir ferðamanna og það stefnumál F.Í., að sem flestir landsmenn fengju að líta fjallafegurð íslenskra óbyggða og lærðu að meta hana að verðleikum.
Geir Zoëga var aðeins 73 ára er hann féll í valinn, en engin ellimörk voru sýnileg á honum, fyrr en hann tók sjúkleika þann, er dró hann til dauða á skömmum tíma. – Hann var maður fríður sýnum og höfðinglegur í framgöngu, skapfastur og drenglundaður, seintekinn nokkuð, en hlýlegur og ljúfur í viðmóti við nánari kynni.
Geir G. Zoëga var fæddur í Reykjavík 28. sept. 1885, lauk verkfræðinámi í Kaupmannahöfn 1911 og var skipaður vegamálastjóri 1917. Gegndi hann því embætti í hartnær 40 ár af frábærum dugnaði og samviskusemi. Hann var kvæntur frændkonu sinni, Hólmfríði Zoëga, sem lifir mann sinn. Fimm börn þeirra eru á lífi og upp komin.
Heimili þeirra að Túngötu 20 hefur verið rómað fyrir myndarskap og gestrisni. Geir G. Zoëga var farsæll gæfumaður bæði í störfum sínum og einkalífi. — Jón Eyþórsson. [Árbók F’I 1959]
Árbók Ferðafélags Íslands 1960:
,,Í sumar var reistur bautasteinn til minningar um Geir G. Zoëga forseta félagsins, og fór fram minningrathöfn við steininn hinn 23. ágúst að viðstöddu fjölmenni og þar á meðal fjölskyldu Geis G. Zoëga. Bautasteinninn er stuðlabergsdrangur frá Akbraut í Holtum, rúmlega 2 m hár, og er á hann letrað GEIR G. ZOËGA / 1885-1959 / FORSETI F.Í. 22 ÁR. Er þetta sandblásið á steinin, og fyrir ofan letrið er merki Ferðafélagsins. Guðmundur frá Miðdal réði gerð minnismerkisins. Drangurinn stendur á jarðföstum steini, þar sem Kjalvegur er hæstur, og er ákaflega víðsýnt frá honum. Ákveðið hefur verið að koma fyrir hringsjá á steini í nágrenni bautasteinsins, og er langt komið að teikna hana, en það er mikið og seinlegt verk. Jón J. Víðis teiknar hringsjána.
Við afhjúpun bautasteinsins lýsti varaforseti F.Í. [Sigurður Þórarinsson] útsýni og kennileitum á Kili og komst svo að orði í lok ræðu sinnar: ,,Minnismerki þetta er þjóðareign. Ferðafélag Íslands mun jafnan nema hér staðar á ferðum sínum. Það mun hlú að og hafa umsjón með merki þessu. Það mun jafnvel gera grænan blett umhverfis það, því hér þrífst margur gróður ef að er hlúð, 680 m yfir sjó.
Minnismerki Geirs G. Zoëga mun standa eins konar vörð um þessa fornu þjóðleið milli landsfjórðunga. Og það mæli ég til þeirra, er nú og síðar stjórna vegamálum vorum, að sýna þessum vegi sérstakan sóma í minningu hins afkastamikla forystumanns í vegagerð og verklegum framkvæmdum á landi hér.””


Minnisvarðinn var reistur 1959 og útsýnisskífan stuttu seinna. Hvort tveggja stendur á Fjórðungsöldu á Kili
Eyvindur Jónsson 1714

Fangar frelsisins
Til minningar um Fjalla-Eyvind Jónsson f. 1714 og Höllu Jónsdóttur f. 1710?, útlaga til margra ára.
Hér í nánd var einn dvalarstaðurinn.


Minnisvarðann gerði Magnús Tómasson myndlistamaður og stendur hann á Hveravöllum á Kili.
Hann var reistur árið 1998.
Fjalla-Eyvindur 1714

Til minningar um Eyvind Jónsson frá Hlíð – Fjalla-Eyvind f. 1714
Við lifum flest við aggsins stríð og ys,
en eigum sjaldan næði frið og ró,
því blessa ég svona stað og stund og þögn
er stillir hugann, veitir hjarta fró.
Að landsins brjóstum leiðir gestinn innar,
sem lítið barn að fangi móður sinnar.

Hveravellir 2018
Er á klettavegg á Hveravöllum
Gert 5.8.2026

